03. apríl 2007 klukkan 22:09
Ég vil nú byrja á því að þakka hlý orð í minn garð úr fermingarblogginu. Aldeilis skemmtilegt. Þeir sem hafa áhuga á að sjá myndband úr fermingarveislunni minni geta haft samband.
Annað. Þetta MySpace dót er vægast sagt að tröll-tröllríða netheiminum í dag. Ég velti fyrir mér, hvað er svona merkilegt með þetta afhverju er þetta æði? Fóóólk hefur verið að skora á mig að fá mér svona en ég nenni ekki að eyða mínum dýrmæta tíma í það að búa til eitthvað útlit og svara einhverjum spurningum og setja einhverjar pósmyndir af mér og svo framvegis.
Þess vegna vil ég biðja þig ágæti lesandi og meðlimur MySpace kerfisins að tjá mér hvað er svona merkilegt við MySpace; hefur líf þitt breyst eftir að þú fékkst þér svona? Ertu frægari? Hefuru verið stoppaður á förnum vegi og spurður: "Hey! Ert þú ekki drekinn_1988 á MySpace?
Og það skal tekið skýrt fram að það er ekki nóg að segja: "Þú kynnist fullt af fólki á MySpace og talar við það þar" Fyrir mér er það ekki ástæða, ég er frægur! Þetta yrði bara vesen því hver vill ekki tala við mig? Maður spyr sig.
Annars er það að frétta að það stefnir allt í RoadTrip með múttu til Sigló City á morgun. Ég bið fyrir snjó og það miklum á Sigló, jafnvel bara uppí Skarði.
Vona að ég verði bænheyrður.
500 kall og málið er dautt
Elvar Ingi Möller
24. mars 2007 klukkan 11:42
Komiði sæl og blessuð í dag 24.mars á ég hvorki meira né minna en 5 ára fermingarafmæli. Í tilefni af þessu 5 ára afmæli þá ákvað ég að taka mig saman í andlitinu og henda hérna inn nokkrum skemmtilegum 5 ára gömlum myndum og ætla ég ekki að reyna að útskýra þær neitt frekar. Myndirnar tala sínu máli.
Tæknin er svo ótrúleg að myndirnar stækka ef þú klikkar á þær...

ooooog síðast en ekki síst...
Það hreinlega nær ekki nokkurri einustu átt hversu drop dead gorgeous maður var fyrir 5 árum. Maður spyr sig hvert þessi kynþokki hafi farið. Þeirri spurningu er ekki auðsvarað.
Elvar Ingi Möller
12. mars 2007 klukkan 21:52

Jafnréttisvika gekk í garð í dag í MK, eða feministavika eins og ég kýs að kalla hana. Eitthvað verður fyrir alla í þessari viku og viðburðir sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Ég bíð til að mynda með mikilli eftirvæntingu eftir fyrirlestri talskonu Feministafélagsins frá Honalúlu en hún mun kenna MK-ingum hvernig á að borða banana þversum, þar sem venjulegt bananaát er talið of klámfengið í nútímasamfélagi, nú prófessorinn Jónatan Þórmundsson mun útskýra nánar þá skýringu sína að klám sé eitthvað loðið og teygjanlegt og síðast en ekki síst munu nemendum MK bjóðast að útskýring á því hvenær og hvernig í ósköpunum saklaus fermingarstelpa fyrir fermingartímarit Smáralindar er talin klám.
Það má því með sanni segja að framundan sé spennandi feministavika í MK og svo sannarlega viðburðir sem aðeins karlrembur missa af.
Elvar Ingi Möller
14. febrúar 2007 klukkan 23:23
Hooooj esskurnar minar :** ógó gg langt síðan ég bloggaði henna. Langaði allt í einu bara svo ógisslega mikið að blogga skilurru og ég barr ákvað að láta það ettir mér marr. Það er samt búið að vera frekar lítið að gerast skomm hjá mér í lífinu skomm. eg tók því bara rólega í kvöld og ikkað horri baarr á America's Next Top Model skilurru, OMG svo ógó skemmtilegir og spennandi þættir ég bara kemst ekki yfir það! :*** Sooo bara frétti ég ekkað i skolanum i dag að það væri eikker Valentínusardagur í dag og allir ekkað GG góðir við alla og vera GG góður við kærustuna/kærastann :O sinn skilurru og ég bara eikkað OMG skilurru þarf að halda upp á alla daga eða? kenær fá þeir sem eru singul sinn dag eillega? ég skil etta ekki marr, mer finnst að þeir sem eru singul eigi alveg jafn mikinn rett á að fá sinn dag skomm, svo bara skamm skamm þeir sem akveða sonna einkverrja daga sem á bara allt í einu að halda uppá skilurru, god ég skil sumt folk ekki :| :S :/
En oke þetta er held ég barasta komið nóg í bili esskurnar eg nenni þessu ógó ekki lengur en ég er allavega buinn að blogga sma fyrir ykkur skiluruu aight en langar samt um að biðja folk um að vera dullegra að komennta skilurru, því ef ég fæ ekki komment þá bara OMG ég veit ekki kernig eg mun haga mer!
Oke bæææ :****
Elvar Ingi Möller
10. febrúar 2007 klukkan 23:21
Nú er það svart. Þegar ég fer að hugsa um það þá held ég að ég gæti verið faðir Dannielynn Hope nýfæðs barn Önnu Nicole Smith heitinnar.
Ég hafði aldrei velt því fyrir mér fyrr en ég las stálsleginn frétt á netinu þess efnis að Anna Nicole Smith hefði fundist látin. Þegar ég fór að velta málinu nánar fyrir mér þá stenst þetta allt, ég held að ég sé barnsfaðir Dannielynn. Þannig er mál með vexti að ég og Anna Nicole Smith kynntumst fyrst er hún lét sjá sig á Síldarævintýrinu á Siglufirði um árið og áttum við þar saman í síðbúnu sumar ástarsambandi sem endaði með því að hún þurfti að hverfa til síns heima aftur í Bandaríkjunum þar sem hún átti að mæta í lýtaraðgerð þriðjudagsmorguninn. Ég heyrði aldrei neitt meira frá henni fyrr en mér bauðst að sitja fyrir á forsíðu Vanity Fair með Scarlett Johanson og Keiru Knightley, augu okkar runnu saman og kviknuðu neistar, neistar sem ég hafði ekki áður upplifað þetta var nýtt, þetta var spennandi og hlutirnir einfaldlega gerðust á svipstundu.
Þetta má virðast sláandi en reikningar mínir standast allir og mun ég á mánudagsmorguninn senda hár- og þvagprufu til Bandaríkjanna þar sem málið verður rannsakað nánar. Ég læt ykkur vita hvernig hlutirnir fara.
Elvar Ingi Möller
09. febrúar 2007 klukkan 14:33
Leyfið mér að mála fyrir ykkur mynd. Það er föstudagur ég er í skólanum að skrifa blogg í eyðu að bíða eftir Stærðfræði523 tíma sem hefst kl 15:05 og stendur til 16:00, erum við að tala um fullkomna uppskrift að hamingju?
Annars er það helst í fréttum að ég þarf að fara að endurskipurleggja mig í bíóferðum, ég lét hafa mig út í að fara á Dreamgirls síðasta sunnudag og þar eru 900kr sem ég mun aldrei sjá aftur. Ég mæli hiklaust ekki með því að fólk og þá sérstaklega strákar fari á myndina þar sem hún er ekki upp á marga fiska eiginlega engann fisk.
Elvar Ingi Möller
29. janúar 2007 klukkan 22:40
Ert þú andfúll? Hefuru verið að hössla skvísu og það hefur liðið yfir hana vegna þess að þú opnaðir munninn og þessi allsvakalega andfýla braust út um allt rýmið sem þú varst í? Ef svo er þá ég svo sannarlega með lausnina fyrir þig því ég er að selja ekki einn, ekki tvo heldur fjóra tannbursta, tvær tannkremstúbur og tannþráð allt saman í pakka á 2000kr. sem er verð sem þu hefur aldrei séð áður og allt til styrktar verðugu málefni. Ef þú ágæti lesandi hefur áhuga á að kaupa af mér þennan ómótstæðilega pakka sem enginn má missa af, andfúlir jafnt sem andgóðir þá þarftu aðeins að tilkynna þig hérna í skilaboðaskjóðunni fyrir neðan.
Það eina sem þú þarft að gera er að tilkynna sjálfan þig hér í kommentunum og líf þitt mun breytast til hins betra á svipsstundu ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara,
munnurinn þinn á það skilið að fá dekur.
Elvar Ingi Möller
21. janúar 2007 klukkan 03:54
Ég vil byrja á því að lýsa yfir óánægju minni með skort á kommentum um bloggið sem er hér fyrir neðan því ég eyddi dágóðum tima í þessa mynd og klæddi mig meðal annars í jakkaföt og alles.
Undankeppnin fyrir söngvakeppni Evrópskra sjónvarsstöðva fær klárlega titillinn sem slakasti viðburður í sjónvarpi núna á síðustu árum. Til hamingju Rúv, þetta er gríðarlegur heiður. Því miður gat Páll Magnússon ekki tekið við verðlaununum þar sem hann er upptekinn í Loftkastalanum, en aðspurður sagðist hann stoltur af titlinum og að honum hafi lengi verið stefnt að.
Heeeerðu segjum þetta gott. Ég ætla að fara í jakkafötin og skella mér í fimmtugs afmæli til Óla Ól Samskips gæja. Ætla ekki að missa af Elton John... It's a little bit funny, this feeling insiiiiiide!
Later
Elvar Ingi Möller
17. janúar 2007 klukkan 04:33
Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram síðastliðna nótt þar sem fallega og fræga fólkið kom saman í sínu allra fínasta pússi og var ég að sjálfsögðu þarna eins og við var að búast þar sem ég er nú einu sinni frægur og gríðarlega fallegur eins og myndin hér að neðan sýnir og sannar.
Mér tókst að finna þessa mynd á netinu til að sjá fötin sem ég klæddist í á hátíðinni en fyrir þá sem eru áhugasamir þá klæddist ég jakkafötum frá Jack & Jones, skóm frá Ecco, skyrtu frá Jack & Jones og bindi frá HK-búðinni. En hér er myndin, njótið vel og ekki horfa of lengi því þá hrynur sjálfsálit ykkar...
Elvar Ingi Möller
30. desember 2006 klukkan 19:13
Nú þegar árið 2006 senn kveður og annálar drekkja okkur þá datt mér í hug að vera með í annálasúpunni og gera upp árið 2006 í mínu lífi.
Það má segja að árið 2006 hafi byrjað með látum því strax í febrúar skelltum við bræðurnir ( - Almar vegna þess að hann hefur ekkert vit á fótbolta) okkur til Bítlaborgarinnar á leik Liverpool - Man Utd. Þetta var fyrsta ferð okkar til Liverpool og klárlega ekki sú síðasta. Leikurinn var fyrir margar sakir minnisstæður vegna sigurs Liverpool á Manchester og fótbrot Alan Smith sem seint verður talið fallegt.
Páskarnir eiga alveg skilið að vera hérna í þessum annál. Það klikkar ekki að fara til Siglufjarðar með fjölskyldunni á páskunum og gera lítt annað en að vera úti í náttúrunni á bretti og þess á milli borða ljúffengan mat.
Nú sumrinu var að mestu leyti eytt í BYKO enda var veðrið hugsanlega í sögulegu lágmarki þetta sumarið og var rigning kunnuleg sjón.
Það breyttist heldur betur í ágúst þegar ég, mamma og pabbi fórum til Mallorca til að drekka í okkur sólina og ná þessum raka úr sumrinu úr okkur.
Árið 2006 var ekki bara gleði og dans á rósum því í byrjun september upplifði ég í fyrsta skipti að lenda í einhverjum almennilegum árekstri þegar viti menn kona keyrði utan í bílinn Hjalta á mótum Flugvallavegar og Hringbrautarinnar. Áhöfnin í skutlunni Hjalta skaddaðist lítið og vorum við tiltölulega heppin þar sem höggið var talsvert. Það er aftur annað mál að skutlan hans Hjalta gjöreyðilagðist í árekstrinum.
Þann 23.nóvember náði undirritaður þeim merka áfanga að verða 18 ára, sjálfráða ungur patti. Það er synd að ég skuli ekki vera búinn að lifa lífinu neitt að ráði eftir að hafa náð þessum áfanga. T.a.m. hef ég ekki enn farið í spilakassa né keypt mér sígarettur, bara uppá fönnið.
Ég held að ég sé búinn að rifja hér upp árið 2006 sem aldrei kemur aftur og við kveðjum senn nokkuð vel. Klárlega er minnisstæðasti atburður ársins ljómandi vel heppnuð ferð til Liverpool á fótboltaleikinn. Upplifun sem ég mun aldrei gleyma.
Maður á víst ekki að betla en ég ætla samt að gera það vegna þess að þetta er síðasta alvöru blogg ársins og vil ég biðja alla þá sem lásu þetta blogg vinsamlegast að skrifa skoðun. Plíííís geriði það fyrir mig að því að árið 2006 er að kveðja. Verið góð við allt og alla og skrifið komment hér fyrir neðan.
Elvar Ingi Möller