Auglżsing

Könnun

Hversu oft feršu innį žessa sķšu?

Teljari

  • Heimsóknir ķ dag: ...
  • Žennan mįnuš: ...
  • Frį upphafi: ...

Minnisstęšustu atburšir įrsins 2006

30. desember 2006 klukkan 19:13
Nú þegar árið 2006 senn kveður og annálar drekkja okkur þá datt mér í hug að vera með í annálasúpunni og gera upp árið 2006 í mínu lífi.

Það má segja að árið 2006 hafi byrjað með látum því strax í febrúar skelltum við bræðurnir ( - Almar vegna þess að hann hefur ekkert vit á fótbolta) okkur til Bítlaborgarinnar á leik Liverpool - Man Utd. Þetta var fyrsta ferð okkar til Liverpool og klárlega ekki sú síðasta. Leikurinn var fyrir margar sakir minnisstæður vegna sigurs Liverpool á Manchester og fótbrot Alan Smith sem seint verður talið fallegt.

Páskarnir eiga alveg skilið að vera hérna í þessum annál. Það klikkar ekki að fara til Siglufjarðar með fjölskyldunni á páskunum og gera lítt annað en að vera úti í náttúrunni á bretti og þess á milli borða ljúffengan mat.

N
ú sumrinu var að mestu leyti eytt í BYKO enda var veðrið hugsanlega í sögulegu lágmarki þetta sumarið og var rigning kunnuleg sjón.
Það breyttist heldur betur í ágúst þegar ég, mamma og pabbi fórum til Mallorca til að drekka í okkur sólina og ná þessum raka úr sumrinu úr okkur.

Árið 2006 var ekki bara gleði og dans á rósum því í byrjun september upplifði ég í fyrsta skipti að lenda í einhverjum almennilegum árekstri þegar viti menn kona keyrði utan í bílinn Hjalta á mótum Flugvallavegar og Hringbrautarinnar. Áhöfnin í skutlunni Hjalta skaddaðist lítið og vorum við tiltölulega heppin þar sem höggið var talsvert. Það er aftur annað mál að skutlan hans Hjalta gjöreyðilagðist í árekstrinum.

Þann 23.nóvember náði undirritaður þeim merka áfanga að verða 18 ára, sjálfráða ungur patti. Það er synd að ég skuli ekki vera búinn að lifa lífinu neitt að ráði eftir að hafa náð þessum áfanga. T.a.m. hef ég ekki enn farið í spilakassa né keypt mér sígarettur, bara uppá fönnið.

Ég held að ég sé búinn að rifja hér upp árið 2006 sem aldrei kemur aftur og við kveðjum senn nokkuð vel. Klárlega er minnisstæðasti atburður ársins ljómandi vel heppnuð ferð til Liverpool á fótboltaleikinn. Upplifun sem ég mun aldrei gleyma.

Maður á víst ekki að betla en ég ætla samt að gera það vegna þess að þetta er síðasta alvöru blogg ársins og vil ég biðja alla þá sem lásu þetta blogg vinsamlegast að skrifa skoðun. Plíííís geriði það fyrir mig að því að árið 2006 er að kveðja. Verið góð við allt og alla og skrifið komment hér fyrir neðan.
Elvar Ingi Möller
Hörkuár hjá þér :)
30. desember 2006 klukkan 20:47
Jóhann
 
kvitt fyrir lesningu.... Áfram Liverpool.
Rétt að Almar hefur ekkert vit á fótbolta í Premier liege.... veit kannski e-ð smá um neðrideildirnar.
30. desember 2006 klukkan 20:53
Takk fyrir árið Elvar minn. Og til hamingju með það að litli frændi minn heitir það sama og þú :)
30. desember 2006 klukkan 21:56
Alma
 
hehe alltaf jafn gaman að lesa bloggin hjá þér;) En þú minntist nú ekkert á mig í árekstrinum og hvernig ég kom verst út úr þessu því bjórinn sprakk gjörsamlega í hárið á mér!:D neinei grín.. en já skemmtu þér vel um áramótin og ég veit að þú munt sjá eftir því að vera ekki hénna heima á sigló! Páll óskar í essinu sínu;)
30. desember 2006 klukkan 22:20
Flott blogg hjá þér:D Kvitta fyrir mig...bæ árið 2006:)
31. desember 2006 klukkan 01:12
flottur elvar! Var líka gott þegar liverpool vann f.a cup.

Bleeesar
31. desember 2006 klukkan 01:24
Elķs
 
Ég las bloggið og það er rosalegt
31. desember 2006 klukkan 06:21
kiddi BYKO
 
elvar!! .. afhverju minnistu ekkert a það hvernig við skemmtum okkur i BYKO i sumar ?? afhverju ekki...
31. desember 2006 klukkan 07:30
steinar
 
hehe þetta var greinilega hörku ár ... þyrftir að bæta þarna að við vinirnir náðum ábyggilega að eyða heilli milljón á subway .. good times ;)

hehe gleðilegt ár og sjáumst hressir og kátir ! :P
31. desember 2006 klukkan 20:47
Aron Ingi
 
Flottur Möller, djöfull ertu flottur!
31. desember 2006 klukkan 21:30
Dķsa ;)
 
flott blogg sæti :)

en ekkert verið að minnast á endurkomu mína í MK?:D

vona þú skemmtir þér geðveikt vel í kvöld, cause you bet your ass I'm going to!!!! :D
31. desember 2006 klukkan 21:41
magnea
 
las bloggið..... gott ár en vonandi verður það næsta skemmtilegra :D
knúsogkossar
magnea heiður
02. janśar 2007 klukkan 01:44
Ágætt blogg minn kæri vin. - Vil nota tækifærið og þakka fyrir það gamla og gleðilegt nýtt ár. Synd að ég náði ekki að heilsa upp á þér á sigló um áramótin.
05. janśar 2007 klukkan 17:00
Var heldur ekkert á Sigló um áramótin :)
05. janśar 2007 klukkan 19:59
Hjalti
 
jamm þetta var minnistætt þarna í september, R.I.P. Suzuki!
06. janśar 2007 klukkan 03:03
blog.central.is/mkferd2007

FUNDUR á morgun í matarhlé upp í bleikasal
11. janśar 2007 klukkan 22:13

Skrifa athugasemd