Auglýsing

Könnun

Hversu oft ferđu inná ţessa síđu?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Feministavika í MK

12. mars 2007 klukkan 21:52
 Jafnréttisvika gekk í garð í dag í MK, eða feministavika eins og ég kýs að kalla hana. Eitthvað verður fyrir alla í þessari viku og viðburðir sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Ég bíð til að mynda með mikilli eftirvæntingu eftir fyrirlestri talskonu Feministafélagsins frá Honalúlu en hún mun kenna MK-ingum hvernig á að borða banana þversum, þar sem venjulegt bananaát er talið of klámfengið í nútímasamfélagi, nú prófessorinn Jónatan Þórmundsson mun útskýra nánar þá skýringu sína að klám sé eitthvað loðið og teygjanlegt og síðast en ekki síst munu nemendum MK bjóðast að útskýring á því hvenær og hvernig í ósköpunum saklaus fermingarstelpa fyrir fermingartímarit Smáralindar er talin klám.

Það má því með sanni segja að framundan sé spennandi feministavika í MK og svo sannarlega viðburðir sem aðeins karlrembur missa af.
Elvar Ingi Möller
Hjalti
 
Ég hata feminista!! Hversu langt á þetta að ganga? Ég vil líka þakka elvari fyrir að birta þessa svokölluðu klámmynd framan á smáralindarbæklingnum, er búin að langa að sjá þessa mynd frá þvi að umræðan byrjaði. Þetta er svo alsaklaust! Vá ég næ ekki upp í........ bless!!
13. mars 2007 klukkan 21:14
magnea
 
Halló þetta er nú ekkert brjálað feminsta kreisíness í gangi... mér finnst fínt að fá frí í tíma til að fara og horfa á Bend it like Beckham og Mona Lisa´s smile ... kannski er það bara ég :S
13. mars 2007 klukkan 22:23
Sæll Elvar:) góður á því sé ég, snilldarfærslur hjá þér út í gegn, maður er líka alltaf að sjá þig á ferðinni hérna í kópavogi, varst t.d að flauta á mig fyrir aftan mig um daginn, hélt að þú værir útúrkókaður handrukkari þannig ég gaf bara í, en sá svo að þetta varst þú þegar ég var kominn heim:D en allavega Feministar eru já, þori ekki að segja meira:)
Kv: Jinxinn
20. mars 2007 klukkan 12:04

Skrifa athugasemd