Auglýsing

Könnun

Hversu oft ferðu inná þessa síðu?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Er ég úti?

03. apríl 2007 klukkan 22:09
Ég vil nú byrja á því að þakka hlý orð í minn garð úr fermingarblogginu. Aldeilis skemmtilegt. Þeir sem hafa áhuga á að sjá myndband úr fermingarveislunni minni geta haft samband.

Annað. Þetta MySpace dót er vægast sagt að tröll-tröllríða netheiminum í dag. Ég velti fyrir mér, hvað er svona merkilegt með þetta afhverju er þetta æði? Fóóólk hefur verið að skora á mig að fá mér svona en ég nenni ekki að eyða mínum dýrmæta tíma í það að búa til eitthvað útlit og svara einhverjum spurningum og setja einhverjar pósmyndir af mér og svo framvegis.
Þess vegna vil ég biðja þig ágæti lesandi og meðlimur MySpace kerfisins að tjá mér hvað er svona merkilegt við MySpace; hefur líf þitt breyst eftir að þú fékkst þér svona? Ertu frægari? Hefuru verið stoppaður á förnum vegi og spurður: "Hey! Ert þú ekki drekinn_1988 á MySpace?
Og það skal tekið skýrt fram að það er ekki nóg að segja: "Þú kynnist fullt af fólki á MySpace og talar við það þar" Fyrir mér er það ekki ástæða, ég er frægur! Þetta yrði bara vesen því hver vill ekki tala við mig? Maður spyr sig.

Annars er það að frétta að það stefnir allt í RoadTrip með múttu til Sigló City á morgun. Ég bið fyrir snjó og það miklum á Sigló, jafnvel bara uppí Skarði.
Vona að ég verði bænheyrður.

500 kall og málið er dautt

Elvar Ingi Möller
magnea
 
hei viltu setja nýja færlsu ... ?
16. maí 2007 klukkan 15:05
Nei ég er eiginlega ekki að nenna því... Þessi síða er alveg að fara að gefa upp öndina.
16. maí 2007 klukkan 17:12
Elís
 
Frussaðu einu bloggi Möllz plísss...
13. júní 2007 klukkan 18:37

Skrifa athugasemd