Auglýsing

Könnun

Hversu oft ferðu inná þessa síðu?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Frá hjartastað

18. júlí 2006 klukkan 23:54
Það er langt síðan ég hef bloggað vegna þess að HM var í fullum gangi og svo er ég alltaf að vinna 9-11 tíma á dag þannig að ég hef ekkert gríðarlega mikinn tíma til að deila hugsunum mínum með ykkur ágæta fólk.. En hér kemur eitt all svaðalegt blogg.


Ísrael vs Líbanon: Hvað er málið með þetta? Þessi ísraelski hermaður sem var rænt hlýtur að vera alveg agalega vinsæll, hann er sennilega gæjinn sem er alltaf að djókast í hinum hermönnunum og slær þá með blautu handklæði þegar þeir eru í sturtu og er alltaf að fíbblast því að nóg er nú búið að gera til að bjarga þessu blessaða greyji. Síðan honum var rænt hafa bombunum gjörsamlega rignt í Líbanon og búið að sprengja flugvöllinn þar og allar leiðir frá landinu. Mitt ráð til þín ef þú lesandi góður ert staddur í Líbanon, forðaðu þér með að borga einhverjum trillukalli það er þín eina von.

BYKO: í dag var enginn smá dagur í BYKO, dagur sem lengi verður í minnum hafður. Í dag gerðist það nefnilega að rafmagnið fór af allri búðinni í hátt í 25mín. Mér leið eins og í bíómynd. Vonaðist til að þetta væri allt planað og að einhverjir gæjar myndu koma inn til að ræna Málningu, Hömrum eða 3" ryðfrýjum nöglum eða eitthvað álíka, en það gerðist ekki mér til mikilla vonbrigða. Stuttu eftir það kom kona sem eyðilagði daginn minn. Það er ótrúlegt hvað mikið er til af svoleiðis fólki, þetta er fólk sem á að vera með skotskífu á bringunni á sér og leyfilegt að lóa gefist tækifæri á því.

Starfsmenn málningadeildar BYKO: Ég áttaði mig á einu í dag, ég kemst ekki nálægt öðrum ullarpeysu starfsmönnum BYKO hvað varðar hözzl. Þessir umtöluðu ullarpeysustarfsmenn BYKO sem gætu allt eins spreyjað bringuna á sér appelsínugula og lúkkað eins og ég í bol því svo loðnir eru þeir á bringunni.  Þessir ullapeysustarfsmenn vaða alveg í kassaskvísunum og ónefndum rafmagnsdeildarstelpum. Ég veit ekki hvort þær fá að klóra þeim á bringunni en ég er að vinna í því að komast að því. Þessir menn eru legends í mínum augum. Mig langar í  ullarpeysu, mig langar að verða eins og þeir.. Ef þið viljið fá eiginhandaráritun frá þessum goðum þá getiði barasta mætt í málningadeildina á daginn eða eflaust farið inná ebay.com eflaust til hellingur af þeim þar.

Innflytjendur: Ég tel mig hugrakkann að þora að nefna þetta umræðuefni hérna. En ástæðan fyrir því að ég nefni það er að ég lendi í ýmsu í BYKO, eins og fegurðardrottningarnar myndu segja "þetta er rosalega gefandi starf og ég ætla pottþétt að nýta eitthvað af þessari reynslu sem ég fæ í vinnunni út í sjálfu lífinu"  En málið er það að ég er einn af þeim sem vill taka það upp að allir innflytjendur sama hvaða hrognamál þeir tala og hvaðan þeir koma og ætla að setjast að á þessu landi eiga að vera skyldugir til að læra málið og þegar þeir kunna það þá meiga þeir flytja í landið. Tökum dæmi: Hvernig er hægt að ætlast til þess að ég afgreiði segjum Tælendinga með einhvern hlut þegar þeir kunna ekki stakkt orð í íslensku né ensku. Ekki dettur mér til hugar að læra málið þeirra því að launin mín eru bara ekki það góð til þess að ég leggi það á mig.

Þetta er orðið all svakalegt blogg og ef ég fæ ekki hundruðir skoðana við þessu bloggi þá verð ég sár og megið þið ekki búast við bloggi frá mér fyrr en í fyrsta lagi um jólin.



Elvar Ingi Möller
8 athugasemdir

Bannerinn?

22. júní 2006 klukkan 16:46
Bannerinn?

Já flottur?

eða

Nei ljótur?
Elvar Ingi Möller
1 athugasemd

HM

10. júní 2006 klukkan 00:49
HM er byrjað ég verð ekki í sambandi við alheiminn aftur fyrr en 10.júlí. Ef þið endilega viljið sjá mig þá verð ég í BYKO frá 8-6 á daginn eða á kvöldin liggjandi uppí rúmi með bumbuna uppí loftið að horfa á Sýn.

Takk fyrir og góðar HM stundir...


Elvar Ingi Möller
Engin athugasemd

VARÚÐ! Passið ykkur á þessu!

31. maí 2006 klukkan 01:13
Hætturnar leynast allsstaðar, sá þetta á Sparsl dollu þegar ég var að raða upp í hillu í BYKO í dag þar sem þetta merki var stórt og áberandi á dollunni.

Gott ef þetta er ekki pínu Bandarískt?
Elvar Ingi Möller
1 athugasemd

Þetta er óóóóótrúlegt!

21. maí 2006 klukkan 04:19
Já eins og stendur í titlinum þetta er alveg ótrúlegt! Kallinn er orðinn óður í bloggunum og þeim hreinlega rignir niður með degi hverjum. En á þessari síðu léttir maður á hjarta sínu og það er það sem ég hef verið að gera og ætla að halda áfram með þessu bloggi, en þannig er nú mál með vexti að Das HúnkeMúller horfði á Söngvakeppni Evrópsku sjónvarpsstöðvanna (Evróvisjón) (Eurovision) (Das Júróvisionas) (Túddalalfrúdd) og studdi þar bandbrjálaður Litháen sem voru án efa með eitt allra svalasta og vandaðasta atriði kvöldsins þar sem sköllóttur gæji fór á kostum í stórbrotnum dansi. Nú eins og flestir vita þá komst Silvía Night ekki áfram í Bananavisjón og ég; snobbaði ég hneykslaðist á framgöngu Silvíu í þessari keppni þar sem að hún datt í einhvern allt annan Övgafullan Silvíu Nótt karakter sem við sáum ekki í þáttunum hennar á Skjá 1, en Silvía einmitt rakkaði allt og alla niður sem varð til þess að púað var á hana eins og hægt var áður en hún söng sem að sumir segja að hafi verið ósanngjarnt en ég já ég segi hún bauð uppá þetta, svo einfalt er það nú íslenska þjóð. Ég ætla að beita mér fyrir því með mínum völdum sem ég hef í landinu og sendiboðum mínum í innsta hring samfélagsins að Stúlli og Sævar; Miðaldamenn fari fyrir hönd íslensku þjóðarinnar, þið þekkið þessa uppskrift og uppskriftir má alltaf bæta og mín tillaga er þessi: Danir sendu tvo miðaldra karlmenn með gítara í keppnina og unnu. Ég legg til að við sendum rúmlega tvo miðaldra karlmenn með hljómborð og raddbönd að vopni til þess eins að sigra þessa keppni og koma með hana heim í heiðarfjörðinn þar sem hún verður haldin á Siglufirði! Miðaldamenn eru svar okkar í Eurovision!

Hugur HönkeMöllersins hefur talað, góðar stundir.
Elvar Ingi Möller
4 athugasemdir

Silvía Nótt

15. maí 2006 klukkan 16:05
Ég veit hvað þið eruð að hugsa, 3 blogg á 5 dögum. En málið er að nú varð ég að tjá mig og hafði eitthvað til að skrifa um þar sem umræðuefni dagsins er Silvía Nótt "Superstar". Eins og allir sem eru í tengingu við raunveruleikann vita þá er hún að fara að taka þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision í vikunni og hef ég löngum talað gegn henni þar sem mér finnst að djókið sé farið að verða frekar þreytt hjá henni, en nú er mælirinn fullur og ég varð að tappa af skoðunum mínum um hana. Það að senda hana í Eurovision er hreint út sagt rugl því að þessi brandari sem senn fer að verða virkilega þreyttur er eitthvað sem aðeins Íslendingar fatta og útlendingar í hinum stóra heimi vita ekki af. Hvernig hún er að haga sér út í Aþenu er fáránlegt, rakkandi niður einhverja hljóðmenn og bullandi og bullandi eins og geðsjúklingur á blaðamannafundum. Það kæmi mér alls ekkert á óvart að á fimmtudaginn þegar hún syngur lag sitt að hljóðmennirnir "klúðri" einhverju (viljandi, þetta er kaldhæðni til þeirra stelpna sem fatta þetta ekki).
Og það að hún sé með þetta crew þarna úti og "lífverði" sem eru ekkert annað en World Class gaurar sem fara í jakkaföt og setja á sig Oakley gleraugun og hlýða skipunum Silvíu. Þetta dæmi allt er að kosta ríkið og þar af leiðandi íslendinga tugi milljóna til einskis. Ágæta þjóð, Silvía Nótt verður skotin niður á fimmtudaginn og rökkuð niður og mun það sjást á stigafjöldanum. Mér þykir það leitt íslenska þjóð að segja ykkur það en Silvía Nótt er ekki að fara að komast áfram í úrslitakeppnina. Því miður.

Elvar Ingi Möller
5 athugasemdir

Kallinn skéllti sér til Englands í boði Baugs

14. maí 2006 klukkan 01:10
Komiði sæl og blessuð..
HunkeMöllerinn tók sér smá pásu frá lærdóminum um helgina og skellti sér á völlinn í Englandi til að sjá úrslitaleik Enska bikarsins þar sem Liverpool og West Ham öttu kappi. Um var aðeins að ræða eins dags ferð í boði Baugs en farið var út kl 10 að íslenskum tíma og er nýlentur á klakann

Umgjörð leiksins var hreint út sagt frábær og stemningin jú hún var gríðarleg. Ákvað að henda hérna inn ferskum og flottum myndum sem mér tókst að taka á meðan leiknum stóð.










Liverpool Football Club F.A Cup meistarar 2006!
Elvar Ingi Möller
2 athugasemdir

Bandaríkin

11. maí 2006 klukkan 04:06
Komiði sæl og blessuð...
Ég hef ekkert að gera og Habbóson bað um blogg þannig að ég gat ekki staðið undir því þannig að ég ákvað að henda inn einhverju hérna. Þannig er mál með vexti að ég og Habbóson eigum það sameiginlegt að vera gríðarlegir aðdáendur Bandaríkjanna og flest alls sem þau gera og hafa uppá að bjóða, þannig að ég hugsaði með mér: Hey ég skrifa blogg um Bandaríkin og hef eitthvað skemmtilegt í því og hér er ég, skrifandi blogg um Bandaríkin. Svo að ég ákvað að gooooooogla "Funny laws in America" og fékk niðurstöður sem voru einhvern veginn svona:

Í Bandaríkjunum er ólöglegt að...

...mæta með gervi yfirvaraskegg í kirkju sem veldur hlátri
...það er ólöglegt að sofa ofan á ískáp utandyra
...þú mátt ekki veiða fisk með höndunum
...það er ólöglegt að sprengja kjarnorkuvopn
...maður með yfirvaraskegg má ekki kyssa konu á almannafæri
...í Arizona máttu ekki vera með fleiri en 2 "Dildóa" heima hjá þér
...í Chicago er bannað með lögum að borða á stað sem er logandi
...í Vermont verður kona að koma með skriflegt leyfi frá tilvonandi eiginmanni hennar um að mega vera með gervitennur
...í Tulsa, Oklahoma er bannað að opna kókflösku án eftilits viðurkennds verkfræðings
...í San Francisco er bannað að þvo bíl með notuðum naríum
...í Pensylvaníu er bannað að syngja inná baði
...í Alabama er ólöglegt að keyra með bundið fyrir augun
...í Connecticut er bannað að labba yfir götu á höndum
ooooooooog í Lousiana er ólöglegt að ræna banka og skjóta að gjaldkeranum með vatnsbyssu


Endum þetta svo á forsetanum..

Bush eldri og yngri í veiðiferð á hamfarasvæðunum í New Orleans..


Ég vona að þið hafið skemmt ykkur, ég skemmti mér ágætlega við að gera þetta blogg
Elvar Ingi Möller
7 athugasemdir

Ooh boy...

01. maí 2006 klukkan 04:28
Ég varð að fara að setja eitthvað inná þetta blogg ef þessi samvist ætti að virka.

Ég var að flakka um á netinu og fór inná þá ágætu heimasíðu www.kvikmynd.is og sá þar Titanic 2 trailer. Ég horfði á hann og velti því fyrir mér hvernig ætti að fara að því að búa til nýja Titanic mynd...
Söguþráðurinn er sá að Leo Di Caprio á að finnast í ísklumpi rúmum 90 árum eftir slysið og hann verður bræddur og myndin s.s fjallar um það hvernig hann á í erfiðleikum með að sætta sig við nýja heiminn. Eeeeeeeeef þetta er ekki eitthvað djók sem það leit ekki út fyrir að vera þá er þetta eitthvað það sorglegasta sem ég hef séð og myndi algjörlega fara með fyrri myndina. Þessi söguþráður er ótrúlegri en léleg mynd með Steven Seagal og ekki nokkur vafi á að myndin yrði skotin niður og jörðuð á staðnum af gagnrýnendum.. Sem betur fer þá sá ég ekki neitt um "Titanic 2" á imdb.com sem gladdi mig myndarinnar vegna ef hún kæmi út..
Ef hún kæmi út þá lýsir þetta ótrúlega vel hversu ráðþrota Hollywood er með nýjar myndir og nýjar hugmyndir að góðum bíómyndum þar sem 95% mynda sem koma út á árinu eru framhaldsmyndir..
Ég vona það heitt og innilega að þessi mynd komi ekki út og þetta sé bara eitthvað Photoshop djók hjá feitum gaur í USA

Læt hérna slóðina flakka með ef þig langar til að hlægja að þessu! http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2175

Hunkið, out!

(Hey plííííííís nenniði að skrifa skoðun? Mér lýður betur ef þið gerið það)
Elvar Ingi Möller
5 athugasemdir

Er þetta málið?

23. apríl 2006 klukkan 05:37
Það er spurningin lesendur góðir, er þetta að gera sig og á að færa síðuna hingað?

Thjahh... tjáiði ykkur nú, og hana nú!

Elvar Ingi Möller
9 athugasemdir